Eva Hrund


Blogg

4.2.2010

Fyllt beikonvafin kjúllabringa með meðlæti

Þar sem kjúllabringan hjá mér heppnaðist svo rosalega vel í gær ákvað ég að deila með ykkur hvernig ég fór að.


Hvítlauksostafyllt beikonvafin kjúllabringa með meðlæti - Mín uppskrift

Fyrir 2

2 kjúllabringur
Lítill rjómaostur með hvítlauksbragði
Beikonpakki
Hvítlaukur
Laukur
Paprika
Nokkrar kartöflur
Naan brauð með hvítlauksbragði
BBQ sósa
Extra Virgin Olive Oil (EVOO)
Maldon salt/garlic powder og svartur pipar (grófur)


Myndin er tekin af netinu.

Aðferð:
Byrjið á því að skera í kjúllabringurnar (hliðarskurð, ekki út í enda) og fyllið hana með rjómaostinum (fer ca 1 msk í hverja bringu). Vefjið kjúllabringuna með beikoni (ca 2-3 sneiðar á bringu, eða bara eftir hentugleika). Kryddið bringuna með maldon salti og grófum svörtum pipar.

Setjið EVOO á pönnu og bringurnar á. Steikið á báðum hliðum þar til beikonið er orðið stökk og látið í eldfast mót og inn í ofn á 200°C.

Skerið niður allt grænmetið og bætið smá olíu á pönnuna sem þið voruð að nota. Kryddið grænmetið með garlic powder, pipar og maldon salti og steikið vel. Þegar kartöflurnar eru orðnar nokkuð mjúkar setjið þá í eldfast mót. Skerið naan brauðið niður og setjið með í eldfast mót og hellið smá EVOO á það. Setjið inn í ofnin með bringunum í ca. 10 mín.

Hitið bbq sóuna í lítilli skál og berið fram með öllu saman. Rosa gott er að setja soðið sem kemur úr kjúllabringuna yfir bringurnar þegar þið borðið.

Bon Appetit!

Skrifað 4.2.2010 kl. 18:06 af Eva Hrund

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

4.2.2010

Kósýlegheit

Ég afrekaði það að hitta að minnsta kosti 75% vinkvenna minna í gær.  Ekki slæmt!

Hvar væri maður án vinkvenna sinna, ég held að ég væri dauð ef þær væru ekki til.


Átti svakalega kósý kvöld með henni Halldóru minni í gær.

- Endalaust spjall

- Skoðað gamlar myndir og video

- Leitað að frægum tvífara mínum

- Kertaljós

- Geggjuð fyllt beikonvafin kjúllabringa með steiktu grænmeti og hvítlauks naan brauði

- Smá hvítt

- Sex and the city

Bara nice!


Ekki verður helgin verri. Það verður loksins Eva, Dóra og Inga reunited á föstudaginn. Þá verður sko tekið upp gamla góða takta.

Sushi og hvítt (eða pizza og bjór), dansað, talað, hlegið.





Sushi á Fishmarket, september 2008.




Það er sko aldrei leiðinlegt hjá okkur


Ekki verður svo laugardagurinn síðri, þar sem að við ætlum að halda Þorrablót á Heiðarbrúninni fyrir familíuna og þessi familía er sko ekki fræg fyrir að láta sér leiðast þegar við hittumst.


- Get ekki sagt annað en að það sé kominn smá spenningur fyrir helginni -

 





Skrifað 4.2.2010 kl. 15:54 af Eva Hrund

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

1.2.2010

Grænmetissúpa

Á hverjum mánudegi er ég með ágæta serimoníu um hádegisleitið. Þá tek ég grænmetisskúffuna út úr ísskápnum, tek allt grænmeti sem er á "síðasta söludag" og sker niður og bý til súpu fyrir kvöldið.

Þó er grunnurinn alltaf sá sami en það er:

- Olía (evoo) eða einhver önnur góð
- Laukur (ca. 3)
- Hvítlaukur (fer eftir smekk með magn)


Í þennan grunn er svo hægt að malla endalaust saman við og búa til hina fínustu Minestrone súpu.




Í dag bætti ég t.d. við:
- Sveppum
- Grænni papriku
- Sellerí
- Steinselju
- Tómat
- Gúrku
- Niðursoðnum tómötum
- Niðursoðnum maís (afgangur frá helginni)
- 2 kjúllabringum
- Svínalund (afgangur frá helginni)
- Frystum baunum og papriku, strengjabaunir og venjulegar
- Heilhveiti pasta skrúfum

Mér finnst svo eiginlega nauðsynlegt að bæta við eftirfarandi kryddum:
- Sjávarsalti
- Svörtum og Hvítum pipar
- Nautakrafti
- Kjúklingakrafti
- Worchester sósu

Önnur góð krydd eru t.d.:
- Hvítlaukspipar
- Cayenne pipar
- Kóríander
- Thyme
- Chili
- Paprika

Ég hef gengið langt í þessum tilraunum og þegar ég bæti sem furðulegustu hlutum við verður hún bara betri, t.d. hef ég bætt í hana:
- Soðnum kartöflum frá helginni áður
- Sósu frá helginni
- Rauðvíni og hvítvíni
- Salat blöndu (alls konar) frá helginni
- Soðinu, maukinu og olíunni úr 40 geira kjúkling (algjörlega gourmet þá)

Hægt að leika sér endalaust með þetta, rosa gott að láta líka:
- Eggaldin
- Nautalund
- Kartöflur
- Kúrbít
- Kjúklingabaunir
- Rauð spaghetti sósa
- Flest allar sósur
- Ferskur chili
- Paprikur
- Gulrætur
- Alls kyns frystar grænmetisblöndur


 Mæli einstaklega vel með þessu, þið eruð að nýta alla afganga sem er náttúrlega kostulegt.

Munið bara að láta vatn út í hehehe.

Ég leyfi þessu svo bara að malla til kvöldmats og smakka súpuna rétt fyrir upp á hvort ég þurfi að blanda einhverjum kryddum út í eða þynna.

Svo er hægt að borða súpuna daginn eftir - hún verður ennþá betri þá. Ég nota alltaf stærsta pottinn og geri nóg magn og set svo í nokkur lítil box og frysti þá í einum og einum skammti. Þannig að ef ég er ekki í stuði til að elda einn daginn, þá kippi ég bara súpu út og set inn í öbbann.

Súpan er æði svona, meira að segja Rósa sys, sem vill BARA rjómalagaðar súpur eða uppbakaðar, ALLS EKKI tærar, finnst þessi súpa góð.

Ég þoli ekki að henda mat og því reyni ég að nýta hann á þennan hátt.

Xoxo

Skrifað 1.2.2010 kl. 22:56 af Eva Hrund

Bein slóð á færslu

5 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

1.2.2010

OJ ...

... þetta finnst mér ekki smekklegt dress!



Britney Spears á Grammy verðlaunafhendingunni í gær emoticon

Skrifað 1.2.2010 kl. 17:00 af Eva Hrund

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

1.2.2010

Storkurinn

Það er vægast sagt hægt að segja að storkurinn hafi komið í heimsókn til flest allra vinkvenna minna árið 2009.



Þetta var alveg ótrúlega fyndin tilviljun. Við vorum 4 í vinnunni sem vorum alltaf saman og upp úr þurru urðu þær allar 3 óléttar. Ég er svo í saumó með æskuvinkonum mínum úr Keflavíkinni, við erum 6 í hópnum og þær urðu allar 5 óléttar. Og til að toppa þetta þá voru 2 aðrar vinkonur mínar óléttar og 2 stelpur sem ég kynntist út í Lúx. Hahahaha, þannig að ég býð mig fram sem frjósemisguð ef einhver vill emoticon

Loksins er óléttutímabilinu lokið og vááá hvað þau eru öll miklar krúsídúllur!! Þetta voru s.s. 10 börn sem ég beið eftir að myndu koma í heiminn og voru þetta 6 stelpur og 4 strákar. Það fyndnasta er það að allar stelpurnar nema sú fyrsta og síðasta eru með Dís í nafninu sínu ... reyndar er sú síðasta óskýrð þannig að...?

Allavega þau komu í þessari röð:



Aníta Ósk Sigurjónsdóttir - Fædd 7. júlí 2009



Dóttir Ernu Kristjáns (TM vinkona) og Sigurjóns


Ísleifur Krummi Björnsson - Fæddur 13. september 2009



Sonur Öbbu (TM vinkona) og Bjössa




Arnar Logi Ragnarsson - Fæddur 24. september 2009



Sonur Ernu G. (æskuvinkona) og Ragga Haralds



Hinrik Viðar Hlynsson - Fæddur 28. október 2009



Sonur Báru Þórðar (æskuvinkonu) og Hlyns Viðars



Hafdís Marvinsdóttir - Fædd 23. nóvember 2009



Dóttir Örnu Bjargar (hmm... engin skilgreining, mjög góð vinkona emoticon ) og Marvins




Bergdís Brá Margeirsdóttir - Fædd 26. nóvember 2009



Dóttir Ernu Ósk (æskuvinkonu) og Margeirs



Þóra Vigdís Gústavsdóttir - Fædd 8. desember 2009 (annars á ég ekki að vita það, fékk ekki sms hehehehe hóst hóst hóst Kristín!!)



Dóttir Kristínu Hjartar (æskuvinkonu) og Gústa



Sóldís Harpa Enoksdóttir - Fædd 29. desember 2009 (rétt náði að fæðast sama ár og allar hinar Keflavíkurdúllurnar)



Dóttir Kristínu Holm (æskuvinkonu) og Enoks




Óskírð Báru og Heiðarsdóttir - Fædd 14. janúar 2010


(Stolin af Barnalandssíðunni hennar - vonandi er mér fyrirgefiðemoticon )
Dóttir Báru Bjarkar (TM vinkonu) og Heiðars Austmanns


... og svo LOKSINS kom sjálfur Kristó í heiminn - ég hef reyndar ekki verið þess heiðurs aðnjótandi að hitta hann enn ... Mjög fyndið dæmi, var alltaf búið að ákveða hvað hann ætti að heita og svo heyrði ég alltaf bara setningar eins og "Kristó var að sparka" o.s.frv. hehehe emoticon


Kristófer Kári Ólafsson (aka Kristó) - Fæddur 22. janúar 2010


(Stolin af Facebook síðu Berglindar Maríu)

Sonur Berglindar Maríu (Bifrastar vinkonu) og Óla




Og þar með eru börnin öll upp talin í bili - ég bara býð eftir næstu hrynu emoticon Nóg á ég af vinkonum sem eru ekki með smábörn og jafnvel engin börn, þannig að ég býð bara spennt emoticon En hérna er smá nostalgía fyrir þessar skvísur af óléttutímabili þeirra hehehe.


Í þessum saumó voru þær allar orðnar óléttar og allar búnar að tilkynna. Ég píndi þær (þó aðallega Báru og Ernu Ósk held ég) með að fá mér bjór í þessum saumó hehehehe.

Bára og Stína                                                             Erna G.



Kristín Hjartar                                            Erna Ósk



Svo var þessi tekin upp á gamanið í brúðkaupi Kristínu Holm og Enoks, titill myndarinnar var: "Allar með óléttar nema Eva". Hehehe skemmtilegt ... hmmm....


Kristín Hjartar, Erna Ósk, Kristín Holm, Arna Björg, Erna G. og ég


Svo ein hér af TM stúlkunum mínum - Erna var reyndar svo snögg að ég náði bara andlitsmyndum af henni þegar hún var preggó hehehe.



Abba og Bára preggó og sætar


Og hún Berglind María hefur forðast myndavélina mína sem heitan eldinn síðustu 2-3 ár þar sem hún hefur í raun verið ólétt allan tímann haha. Þannig að emoticon

Ég er komin með það á hreint að mér var ekki boðið í saumaklúbbinn þegar æskuvinkonurnar ákváðu allar að verða óléttar í einu, ég man allavega ekki eftir þessu umræðuefni. Og ætli þær hafi svo ekki ákveðið í einum mömmuhittingnum að allar stelpurnar yrðu að hafa nafnið Dís í nafninu sínu, held að það sé nokkuð ljóst þar sem að Arna Björg gerði það og hún er í mömmuhópnum. Mjöööög spes og gruggugt emoticon  Halló halló, ég meina Hafdís, Bergdís, Þóra Vigdís, Sóldís. Strákarnir hafa greinilega sloppið, enda hef ég heyrt að Bára og Erna G. séu ekkert frægar fyrir að mæta í mömmuklúbbinn, þetta hefur greinilega verið þann dag sem hvorugar mættu sem þetta var ákveðið emoticon

Ég var alvarlega að spá í að kaupa mér bara hvolp og skýra hana Dís og fá að mæta með hana í mömmuhittingana ... væri það ekki svolítið sniðugt?

Kveðja, Eva ó-ólétta ... eða létta? Nei það passar ekki heldur.




Skrifað 1.2.2010 kl. 15:09 af Eva Hrund

Bein slóð á færslu

6 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

30.1.2010

Óþarfa lýtaaðgerðir!

Skoða nánar

27.1.2010

Whut?

Skoða nánar

22.1.2010

FRÍR PRUFUTÍMI

Skoða nánar

19.1.2010

With your pants on the ground ...

Skoða nánar

18.1.2010

Sparnaðarráð

Skoða nánar

17.1.2010

Konusápa ...

Skoða nánar

16.1.2010

Heilhveiti-pizza botn

Skoða nánar

14.1.2010

Áramótaheit!

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu



Who?

Nafn:

Eva Hrund Gunnarsdóttir

MSN netfang:

evahrund@hotmail.com

Tenglar

Flettingar í dag: 16
Gestir í dag: 5
Flettingar í gær: 38
Gestir í gær: 14
Samtals flettingar: 194602
Samtals gestir: 78042
Tölur uppfærðar: 9.2.2010 14:26:36
clockhere

eXTReMe Tracker