Eva Hrund


Blogg

9.3.2010

Jæja þá ...

Ég held að það sé hægt að fullyrða það að ég sé undanfarið búin að vera ömurlegur bloggari, ef hægt er að kalla mig bloggara!!

Ástæðan fyrir þessu bloggleysi er eflaust sú að ég er að reyna koma mér inn í nýja rútínu, þ.e. að vinna 100% vinnu, þjálfa fimleika, æfa fimleika og yfir höfuð að lifa þessu daglega lífi. Stundataflan hjá mér er nokkuð kreisí eða ca. svona:

Mán - Vinna frá 08:00-16:00, Þjálfa frá 17:00-18:00, Þjálfa frá 19:30-21:00

Þri - Vinna frá 08:00-16:00, Fimleikaæfing í bænum frá 20:00-21:30

Mið - Vinna frá 08:00-16:00, Þjálfa frá 17:00-18:00, Þjálfa frá 19:30-21:00

Fim - Vinna frá 08:00-16:00, Fimleikaæfing í bænum frá 20:00-21:30

Fös - Vinna frá 08:00-16:00


Og svo fer náttúrlega mikill tími í hin daglegu verkefni sem fylgja svona dagskrá eins og t.d. það mikilvægasta: AÐ SOOOOOOOFA! Hehehe sérstaklega núna þegar ég er að reyna að sortera inn í þessa dagskrá mína, þá er maður algjörlega örmagna.

En hey! I luv this! Myndi aldrei vilja skipta þessu út fyrir atvinnuleysi og tóma dagskrá, never ever!

Svo er ég komin með sumarjob líka, þannig að það er allt að koma saman hjá mér.



Allavega nóg af þessu update-i, finnst eflaust engum gaman að lesa um það. Ég ákvað að búa til mínar eigin tortillur um daginn og þær heppnuðust svo vel að ég ákvað að deila hér með ykkur!! Uppskriftin er auðveldari en það að fara út í búð og kaupa þær og að sjálfsögðu líka ódýrari. Here it goes:


Heilhveiti Tortillur -
Stuðst við uppskrift úr bókinni "Lærum að elda mexíkóskt"


300 gr. heilhveiti (í bókinni var talað um 300 gr. af maísmjöl - einnig hægt að nota hvítt hveiti)

1 tsk. salt

300 ml. volgt vatn (samt aðeins minna) (300-350 ml miðað við maísmjöl)




Blandið heilhveiti og salti saman. Hellið volga vatninu rólega í þar til degið er orðið mjúkt og flott. Hnoðið deigið og búið til ca. 10 kúlur úr því.

Fletjið kúlurnar út með kökukefli. Setjið brauðdisk ofan á til að útbúa hringlóttar kökur og skerið út. Setjið torilluna á þurra pönnu og steikið báðum megin. Þið sjáið hvenær þær eruð tilbúnar.

Ég lét þær svo bara í viskustykki til að halda þeim heitum og góðum.





Skrifað 9.3.2010 kl. 15:28 af Eva Hrund

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

4.2.2010

Kósýlegheit

Ég afrekaði það að hitta að minnsta kosti 75% vinkvenna minna í gær.  Ekki slæmt!

Hvar væri maður án vinkvenna sinna, ég held að ég væri dauð ef þær væru ekki til.


Átti svakalega kósý kvöld með henni Halldóru minni í gær.

- Endalaust spjall

- Skoðað gamlar myndir og video

- Leitað að frægum tvífara mínum

- Kertaljós

- Geggjuð fyllt beikonvafin kjúllabringa með steiktu grænmeti og hvítlauks naan brauði

- Smá hvítt

- Sex and the city

Bara nice!


Ekki verður helgin verri. Það verður loksins Eva, Dóra og Inga reunited á föstudaginn. Þá verður sko tekið upp gamla góða takta.

Sushi og hvítt (eða pizza og bjór), dansað, talað, hlegið.





Sushi á Fishmarket, september 2008.




Það er sko aldrei leiðinlegt hjá okkur


Ekki verður svo laugardagurinn síðri, þar sem að við ætlum að halda Þorrablót á Heiðarbrúninni fyrir familíuna og þessi familía er sko ekki fræg fyrir að láta sér leiðast þegar við hittumst.


- Get ekki sagt annað en að það sé kominn smá spenningur fyrir helginni -

 





Skrifað 4.2.2010 kl. 15:54 af Eva Hrund

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

1.2.2010

Storkurinn

Það er vægast sagt hægt að segja að storkurinn hafi komið í heimsókn til flest allra vinkvenna minna árið 2009.



Þetta var alveg ótrúlega fyndin tilviljun. Við vorum 4 í vinnunni sem vorum alltaf saman og upp úr þurru urðu þær allar 3 óléttar. Ég er svo í saumó með æskuvinkonum mínum úr Keflavíkinni, við erum 6 í hópnum og þær urðu allar 5 óléttar. Og til að toppa þetta þá voru 2 aðrar vinkonur mínar óléttar og 2 stelpur sem ég kynntist út í Lúx. Hahahaha, þannig að ég býð mig fram sem frjósemisguð ef einhver vill emoticon

Loksins er óléttutímabilinu lokið og vááá hvað þau eru öll miklar krúsídúllur!! Þetta voru s.s. 10 börn sem ég beið eftir að myndu koma í heiminn og voru þetta 6 stelpur og 4 strákar. Það fyndnasta er það að allar stelpurnar nema sú fyrsta og síðasta eru með Dís í nafninu sínu ... reyndar er sú síðasta óskýrð þannig að...?

Allavega þau komu í þessari röð:



Aníta Ósk Sigurjónsdóttir - Fædd 7. júlí 2009



Dóttir Ernu Kristjáns (TM vinkona) og Sigurjóns


Ísleifur Krummi Björnsson - Fæddur 13. september 2009



Sonur Öbbu (TM vinkona) og Bjössa




Arnar Logi Ragnarsson - Fæddur 24. september 2009



Sonur Ernu G. (æskuvinkona) og Ragga Haralds



Hinrik Viðar Hlynsson - Fæddur 28. október 2009



Sonur Báru Þórðar (æskuvinkonu) og Hlyns Viðars



Hafdís Marvinsdóttir - Fædd 23. nóvember 2009



Dóttir Örnu Bjargar (hmm... engin skilgreining, mjög góð vinkona emoticon ) og Marvins




Bergdís Brá Margeirsdóttir - Fædd 26. nóvember 2009



Dóttir Ernu Ósk (æskuvinkonu) og Margeirs



Þóra Vigdís Gústavsdóttir - Fædd 8. desember 2009 (annars á ég ekki að vita það, fékk ekki sms hehehehe hóst hóst hóst Kristín!!)



Dóttir Kristínu Hjartar (æskuvinkonu) og Gústa



Sóldís Harpa Enoksdóttir - Fædd 29. desember 2009 (rétt náði að fæðast sama ár og allar hinar Keflavíkurdúllurnar)



Dóttir Kristínu Holm (æskuvinkonu) og Enoks




Óskírð Báru og Heiðarsdóttir - Fædd 14. janúar 2010


(Stolin af Barnalandssíðunni hennar - vonandi er mér fyrirgefiðemoticon )
Dóttir Báru Bjarkar (TM vinkonu) og Heiðars Austmanns


... og svo LOKSINS kom sjálfur Kristó í heiminn - ég hef reyndar ekki verið þess heiðurs aðnjótandi að hitta hann enn ... Mjög fyndið dæmi, var alltaf búið að ákveða hvað hann ætti að heita og svo heyrði ég alltaf bara setningar eins og "Kristó var að sparka" o.s.frv. hehehe emoticon


Kristófer Kári Ólafsson (aka Kristó) - Fæddur 22. janúar 2010


(Stolin af Facebook síðu Berglindar Maríu)

Sonur Berglindar Maríu (Bifrastar vinkonu) og Óla




Og þar með eru börnin öll upp talin í bili - ég bara býð eftir næstu hrynu emoticon Nóg á ég af vinkonum sem eru ekki með smábörn og jafnvel engin börn, þannig að ég býð bara spennt emoticon En hérna er smá nostalgía fyrir þessar skvísur af óléttutímabili þeirra hehehe.


Í þessum saumó voru þær allar orðnar óléttar og allar búnar að tilkynna. Ég píndi þær (þó aðallega Báru og Ernu Ósk held ég) með að fá mér bjór í þessum saumó hehehehe.

Bára og Stína                                                             Erna G.



Kristín Hjartar                                            Erna Ósk



Svo var þessi tekin upp á gamanið í brúðkaupi Kristínu Holm og Enoks, titill myndarinnar var: "Allar með óléttar nema Eva". Hehehe skemmtilegt ... hmmm....


Kristín Hjartar, Erna Ósk, Kristín Holm, Arna Björg, Erna G. og ég


Svo ein hér af TM stúlkunum mínum - Erna var reyndar svo snögg að ég náði bara andlitsmyndum af henni þegar hún var preggó hehehe.



Abba og Bára preggó og sætar


Og hún Berglind María hefur forðast myndavélina mína sem heitan eldinn síðustu 2-3 ár þar sem hún hefur í raun verið ólétt allan tímann haha. Þannig að emoticon

Ég er komin með það á hreint að mér var ekki boðið í saumaklúbbinn þegar æskuvinkonurnar ákváðu allar að verða óléttar í einu, ég man allavega ekki eftir þessu umræðuefni. Og ætli þær hafi svo ekki ákveðið í einum mömmuhittingnum að allar stelpurnar yrðu að hafa nafnið Dís í nafninu sínu, held að það sé nokkuð ljóst þar sem að Arna Björg gerði það og hún er í mömmuhópnum. Mjöööög spes og gruggugt emoticon  Halló halló, ég meina Hafdís, Bergdís, Þóra Vigdís, Sóldís. Strákarnir hafa greinilega sloppið, enda hef ég heyrt að Bára og Erna G. séu ekkert frægar fyrir að mæta í mömmuklúbbinn, þetta hefur greinilega verið þann dag sem hvorugar mættu sem þetta var ákveðið emoticon

Ég var alvarlega að spá í að kaupa mér bara hvolp og skýra hana Dís og fá að mæta með hana í mömmuhittingana ... væri það ekki svolítið sniðugt?

Kveðja, Eva ó-ólétta ... eða létta? Nei það passar ekki heldur.




Skrifað 1.2.2010 kl. 15:09 af Eva Hrund

Bein slóð á færslu

6 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

18.8.2009

Back to life

Það er eiginlega bara fáránlegt hvað maður getur dottið út eftir að maður tekur smá frí. Ég ákvað s.s. að taka frí með múttu og Rósu þegar þær komu hingað og ég er fyrst núna að koma mér í rútínuna aftur.

AÐ SJÁLFSÖGÐU náði ég að bæta á mig aftur, þar sem ég var í fríi, en ég verð bara að snúa þessu aftur við núna, held mér sé loksins að takast það. Það er alveg fáránlegt hvað það er erfitt að komast alltaf í þennan gír aftur. Samt löbbuðum við alltaf yfir 7 km á dag þegar þær voru hérna, en maður var hinsvegar alltaf að setjast niður og fá sér eitthvað og það er ekki hægt að segja að maður hafi verið eitthvað sérlega hollur í matarræði.

Ég ætlaði mér að byrja aftur í gær - þið vitið MÁNUDAGS loforðið, en þar sem að við vorum að versla restina inn í íbúðina þá fauk það loforð út um dyrnar. Náði ekki að taka æfingu, var algjörlega orkulaus eftir "góða þjónustu og auðvelda þjónustuferla" hér í Lúx. Að lokum vorum við svo hungruð þar sem við höfðum ekkert fengið okkur á milli mála og AÐ SJÁLFSÖGÐU var Pizza Hut fyrir valinu.... Kræst! Og víst dagurinn fauk út um veður og vind með Pizza Hut og æfingarleysi, þá ákvað ég að trompa hann bara með smá M&M. Maður er svo klikkaður!

Héðan í frá ætla ég að gera sjálfri mér það LOFORÐ að þegar ég fæ gesti þá þýðir það ekki að ég geti ekki hreyft mig meðan gestirnir sofa út og það þýðir ekki heldur að ég þurfi að falla í sukkið þó svo aðrir panti sér ekki hollasta matinn á veitingastaðinum. Og þó svo að ég hafi gert villu um daginn þá þýðir það ekki að ég eigi að halda áfram.

ÞANNIG AÐ ... ég er búin að fá mér hafragraut í morgunmat og þarf að fá mér núna eitthvað áður en ég dríf mig út að hlaupa.

... EN YFIR Í AÐRA OG SKEMMTILEGRI SÁLMA ...

... þá erum við búin að kaupa "restina" inn í íbúðina OG ákváðum að dissa tilboð Bo Concept og spara okkur yfir 5.000 Evrur með að versla bara í IKEA og við sjáum sko ekki eftir því takk fyrir!

Í IKEA keyptum við:

- Sófa inn í stofu sem er kúrusófi. Keypti nefnilega "óþæginlegan" leðursófa inn í Hörðukórið og sá alltaf eftir því því maður gat ekki kúrað yfir sjónvarpinu. Og það góða við þennan sófa er það að hann er líka svefnsófi! Sem þýðir að við getum tekið á móti fleiri en bara 2 gestum núna.

- Borðstofuborð og stóla fyrir sex manns. Finally get ég farið að bjóða fólki í mat!

- Sófaborð.

- Sjónvarpsskáp/hillu.

- Skenk.


Í Cora Concord keyptum við:

- Svaka flottan Samsung LCD flatskjá ... gaurinn talaði mikið um það að við ættum frekar að kaupa LCD í stað Plasma og að Samsung væri besta merkið þarna inni (samt var það ekki dýrast).

- Blue Ray tæki. Inn í því er líka surround system, dvd spilari/geislaspilari og tengi fyrir I-pod.

Við erum svo bæði svo utangátta í þessum málum að hann hefði alveg eins getað selt okkur eitthvað drasl, vona bara að hann hafi meikað sens. Í svona tilvikum treystir maður því að þessir sölumenn séu að segja sannleikann og mér fannst það allavega gott að heyra að hann var ekki að reyna selja okkur dýrari tæki sem við actually vorum að pæla í.

IKEA dótið kemur á morgun og þá verður bara sett í sjötta gír og sett allt saman og þá sérstaklega sjónvarpsskápinn, þar sem að sjónvarpstækið og það kemur til okkar fimmtudagsmorgun.

VIÐ GETUM S.S. LOKSINS HAFT ALMENNILEGT PIZZAKVÖLD á föstudaginn með video og tilheyrandi!!!

SÁTT!


Skrifað 18.8.2009 kl. 8:02 af Eva Hrund

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

27.7.2009

Fréttir frá útlöndunum

Djísús, það mætti halda að ég gerði ekkert hérna í útlöndunum nema að elda þar sem það er það eina sem hefur komið inn á bloggið mitt undanfarið hehe.

Ég veit ekki hvað það er en það er bara eitthvað voðalega lítið að frétta af okkur héðan úr Lúxuslandinu.

Það eina sem maður gerir er að vinna, æfa, slaka á, hitta fólk, vesenast í íbúðinni og elda já hehehehe.

En okey, ég ætti nú að geta skrifað eitthvað um þessi atriði hér að ofan þó svo að það sé það eina sem er að frétta af okkur.

Vinnan...
... gengur bara svakavel. Ég er alveg fáránlega heppin manneskja að fá að vinna vinnuna mína svona í fjarvinnu og þetta verður alltaf einfaldara og einfaldara dæmi. Ég er loksins búin að koma mér upp skrifstofu hérna heima í gestaherberginu og er svona svakalega ánægð með hana. Munar ekkert smá miklu að geta unnið án þess að vera beygla bakið í barstólnum fram í eldhúsi (sem er ekki með stuðning í bakið) eða upp í rúmi. Ekkert smá kósý. Ég kem svo heim í enda ágúst bæði til að vinna og hitta fólkið mitt allt saman!

Æfingarnar...
... ganga líka bara svona svakalega vel. Ég er búin að losa mig við 3,5 kg. á síðustu 3 vikum, en ég mun skrifa meira um árangurinn í lok þessarar viku þar sem að þá er kominn mánuður og vonandi meira að gerast í þeim málum. Það er alveg ótrúlega gaman að gera þetta svona vinkonurnar saman í e-mail sendingum, því það rekur rosalega mikið á eftir manni að vita að þær eru að skoða árangurinn. Ég hef verði að taka fyrir og eftir myndir, en þeim deili ég ekki hér í bráð... kannski þegar ég er búin að ná mér vel hehehe. Munurinn liggur hinsvegar í því að í byrjun náði ég ekki einu sinni að hysja "my skinny jeans" upp en síðast náði ég að hneppa þeim og renna upp takk fyrir... en ekki það að ég hafi lúkkað eitthvað vel út í þeim, en það er allavega talsverður árangur takk fyrir. Ég hef bara verið aðallega að passa upp á að gera styrktaræfingar 3 x í viku og brenna 3 x í viku. En þá hleyp ég ca. 7,5 km. eða geri einhverja aðra skemmtilega brennslu. Markmiðið hjá mér er í rauninni það að brenna 500 kkal á dag og borða ekki meir en 1.500 kkal á dag.. Ef ég er að fara mikið yfir kaloríumagnið þá brenni ég meira. Reyni að koma jafnvægi þannig á. Ég og Heiðar tókum þá ákvörðun eftir gærdaginn að allt nammi er farið út hjá okkur, nema 70-90% hreint súkkulaði. Ojjj þetta er nú meiri vibbin! Sko hvað haldið þið að það séu margar kaloríur í þessari skál af m&m og kirsubjerjahlaupi (mitt uppáhald hér)?



Virðist vera nokkuð saklaust EEEEEEEN 1.000 kkal já!

Haha, þannig að þetta nammi er búið að vera smá djöfull aftan á mér. En þá líka bara var tekin sú ákvörðun að fela þetta nammi og banna það hehe.

Svo er ég búin að fara núna 2 x út á golfvöll með Heiðari og markmiðið er að henda mér í þjálfun svo ég geti tekið þátt í þessu sporti með honum, þar sem að þetta sport er ekki frægt fyrir að taka lítinn tíma.

Afslöppun ...
... er góð fyrir líkama og sál jáhá! Ef það er eitthvað sem við hjúin erum búin að vera að gera undanfarið þá er það að slaka á. Ég er búin að koma Heiðari inn í bæði Despó og Greys, þannig að við bíðum núna bara spennt eftir því að 5. sería af Despó og Greys verði gefnar út, svo við getum haldið áfram að slappa af!! haha

Heiðar er næstum því búinn með Elvis Presley bókina í afslöppuninni og að verða tæknilegur sérfræðingur í golfi með því að glápa á slatta af æfingarmyndböndum á youtube og með því að fara á völlinn.

Ég slappa af með því að glápa á góða þætti, lesa uppskriftarbækur og heilsumola, rölta um og hreyfa mig. Ekki  má svo gleyma því að ég tók saumavélina upp um daginn og er eitthvað byrjuð að leika mér í því að gera eitthvað við föt sem að ég nota ekki lengur... Ég er búin að stytta nokkrar buxur og svona, bara gaman að rifja upp gamla takta á saumavélinni sko.

Hittingar ...
Það hefur kannski ekki verið mikið af þeim í hópum, en við erum núna búin að hitta Iðunni og Stebba 2 x frá því að þau komu til Lúx. Ég er svo búin að vera að fara með Siobhain og Nicole út að borða eða í kaffibolla. Svo hitti ég 3 frábærar íslenskar konur hér áður en þær fóru í sumarfrí til Íslands, verður bara gaman að kynnast þeim betur. Heiðar er svo búinn að vera duglegur að hitta strákana á golfvellinum hehe.

Íbúðin ...
... gengur ... en gengur hægt! En svoleiðis eiga hlutirnir líka að vera, þá get ég líka einbeitt mér vel að því hvað ég vil kaupa og hvað kemur vel út, í stað þess að hrúga einhverju hérna inn. Það sem við eigum eftir að klára er:

- Grill
- Útihúsgögn
- Þurrkari (orðið svolítil nauðsyn að mínu mati - geitungarnir hanga í fötunum á snúrunni)
- Borðstofuborð og stólar
- Skenkur og spegill fyrir ofan hann
- Sjónvarpssófi (sem er líka svefnsófi)
- Sófaborð
- Sjónvarpsskenkur
- Sjónvarp

Svo svona ýmislegt annað til að gera íbúðina flottari. Ég kláraði allavega síðast skrifstofuna handa mér eins og ég sagði áðan og hún endaði svona:



Mér finnst æðislegt að þetta gekk upp hjá mér að vera með skrifborðið við gluggann... fannst eitthvað hálfómögulegt að vera með andlitið í veggnum allan daginn, sérstaklega þegar maður er vanur því í vinnunni að hafa alltaf einhvern á móti sér hehehe. Eins og þið sjáið þá er ég líka búin að snúa áklæðinu á svefnsófanum við, finnst hvítt koma betur út þó að þetta sá á röngunni... hmm... Heiðar er ekki alveg sammála mér enda valdi hann reyndar svefnsófann híhí. Held það komi rosa vel út sérstaklega ef ég fæ mér brúna og rauða pullur/kodda í hann. En þarna get ég líka saumað og er saumavélin bara þarna í felum á bakvið körfuna.

Matreiðslan ...
... ég er alltaf að verða duglegari og duglegari að elda og finna uppá nýjum réttum, en það versta er bara að mér finnst svo svakalega leiðinlegt að ganga frá eftir eldamennskuna, en það kemst í vana að ganga frá eftir mig. Ég luma ennþá á nokkrum uppskriftum í viðbót, en þetta er orðið fínt í bili í dag af uppskriftum. Uppskriftir sem ég er ekki búin að setja inn eru t.d. Lúxus hamborgari, Grillað kjúklingasalat, Morgunsafinn minn, Heilsubrauð, Túnfiskasalat (ekki majones) o.fl.

Jæja þetta er gott í bili. Þetta er s.s. lífið mitt í hnotskurn núna haha, en vonandi verður meira að frétta næst. Planið er allavega að taka lestina til Parísar um helgina, þannig að kannski eigum við hjúin eftir að gera eitthvað annað en að slaka á næstu helgi, þar sem það er nú einu sinni Verzlunarmannahelgi. Svo reyndar koma mútta og Rósa sys í heimsókn til okkar í 4 daga eftir verslunarmannhelgi, þannig að þá verð ég sko sátt emoticon

Seeya!


Skrifað 27.7.2009 kl. 13:23 af Eva Hrund

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

14.6.2009

Pásan búin

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu



Who?

Nafn:

Eva Hrund Gunnarsdóttir

MSN netfang:

evahrund@hotmail.com

Tenglar

Flettingar í dag: 25
Gestir í dag: 4
Flettingar í gær: 211
Gestir í gær: 51
Samtals flettingar: 196697
Samtals gestir: 78622
Tölur uppfærðar: 11.3.2010 11:20:59
clockhere

eXTReMe Tracker