Eva Hrund


Blogg

10.3.2010

Quesadilla með tómat og hvítlauk

Quesadilla með tómat og hvílauk - Mín uppskrift


Ég gerði sjúklega gott quesadilla úr tortilla uppskriftinni sem ég lét hér inn í gær og VERÐ bara að deila með ykkur.


Myndin er tekin af netinu

Til að gera eitt stykki þarf eftirfarandi hráefni:

2 tortilla
2 tómata
2 hvítlauksgeira
Hvítlauksolíu
Ost

Aðferð:

Forhitið ofninn í 200°C.

Skerið tómatana í litla bita og saxið hvítlaukinn. Blandið þessu saman í skál og bætið ca. 1 msk af hvítlauksolíu með.

Leggið eina tortilla á álpappír og setjið nokkrar ostsneiðar á hana, setjið maukið því næst á og svo meiri ost ofan á það. Leggið aðra tortilla ofan á. Skellið inn í ofn þar til osturinn bráðnar vel og torilla er orðin vel bökuð að ofan. Skerið í bita (líkt og pizzu).

Voilla!

Skrifað 10.3.2010 kl. 9:14 af Eva Hrund

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

9.3.2010

Jæja þá ...

Ég held að það sé hægt að fullyrða það að ég sé undanfarið búin að vera ömurlegur bloggari, ef hægt er að kalla mig bloggara!!

Ástæðan fyrir þessu bloggleysi er eflaust sú að ég er að reyna koma mér inn í nýja rútínu, þ.e. að vinna 100% vinnu, þjálfa fimleika, æfa fimleika og yfir höfuð að lifa þessu daglega lífi. Stundataflan hjá mér er nokkuð kreisí eða ca. svona:

Mán - Vinna frá 08:00-16:00, Þjálfa frá 17:00-18:00, Þjálfa frá 19:30-21:00

Þri - Vinna frá 08:00-16:00, Fimleikaæfing í bænum frá 20:00-21:30

Mið - Vinna frá 08:00-16:00, Þjálfa frá 17:00-18:00, Þjálfa frá 19:30-21:00

Fim - Vinna frá 08:00-16:00, Fimleikaæfing í bænum frá 20:00-21:30

Fös - Vinna frá 08:00-16:00


Og svo fer náttúrlega mikill tími í hin daglegu verkefni sem fylgja svona dagskrá eins og t.d. það mikilvægasta: AÐ SOOOOOOOFA! Hehehe sérstaklega núna þegar ég er að reyna að sortera inn í þessa dagskrá mína, þá er maður algjörlega örmagna.

En hey! I luv this! Myndi aldrei vilja skipta þessu út fyrir atvinnuleysi og tóma dagskrá, never ever!

Svo er ég komin með sumarjob líka, þannig að það er allt að koma saman hjá mér.



Allavega nóg af þessu update-i, finnst eflaust engum gaman að lesa um það. Ég ákvað að búa til mínar eigin tortillur um daginn og þær heppnuðust svo vel að ég ákvað að deila hér með ykkur!! Uppskriftin er auðveldari en það að fara út í búð og kaupa þær og að sjálfsögðu líka ódýrari. Here it goes:


Heilhveiti Tortillur -
Stuðst við uppskrift úr bókinni "Lærum að elda mexíkóskt"


300 gr. heilhveiti (í bókinni var talað um 300 gr. af maísmjöl - einnig hægt að nota hvítt hveiti)

1 tsk. salt

300 ml. volgt vatn (samt aðeins minna) (300-350 ml miðað við maísmjöl)




Blandið heilhveiti og salti saman. Hellið volga vatninu rólega í þar til degið er orðið mjúkt og flott. Hnoðið deigið og búið til ca. 10 kúlur úr því.

Fletjið kúlurnar út með kökukefli. Setjið brauðdisk ofan á til að útbúa hringlóttar kökur og skerið út. Setjið torilluna á þurra pönnu og steikið báðum megin. Þið sjáið hvenær þær eruð tilbúnar.

Ég lét þær svo bara í viskustykki til að halda þeim heitum og góðum.





Skrifað 9.3.2010 kl. 15:28 af Eva Hrund

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

16.2.2010

Geggjuð mexíkósk kjúllasúpa!!

Þessi kjúllasúpa er GEEEEEEÐSJÚÚÚÚK. Ég elda hana MJÖG oft þar sem að hún er holl, góð og koloríusnauð. Ég geri oft 2faldan skammt þar sem mér finnst svo gott að setja í box og frysta í skömmtum. Svo þegar ég nenni ekki  að elda, þá bara kippi ég einu boxi út og hendi inn í öbbann í ca. 10 mín.

Þar sem ég vil hafa hana í hollari kantinum, þá læt ég yfirleitt bara smá sýrðan rjóma (5-10%) út í og örlítinn rifinn ost. Sleppi s.s. hinu jukkinu (nachos o.fl.).

Þessi uppskrift er tekin af JSB (Jassballetskóli Báru) vefnum og það eru margar aðrar girnilegar uppskriftir þar, endilega kíkið á það. Ég hef reyndar bara prufað þessa og miðað við hvað hún er góð, þá efast ég ekki um annað en að hinar séu jafn góðar!


Mexíkósk súpa (fyrir4)

Hráefni:
  • 2 laukar
  • 2 hvítlauksrif
  • ½  flaska granini tómatsafi
  • 3 dl kjúklingakraftur
  • 3 dl kjöt-/grænmetiskraftur
  • 2 súputeningar
  • 1 tsk worchestersósa
  • 1 dósir niðursoðnir tómatar
  • ¼  rauður chillipipar
  • ¼  tsk kóriander
  • ¼  tsk chillikrydd
  • ¼ tsk cayennepipar
  • 2-3 kjúklingabringur (skinnlausar)

 

Aðferð:

  1. Skerið niður lauk og hvítlauk og mýkið á pönnu.
  2. Setjið allt hráefnið nema kjúklinginn í pott og sjóðið við vægan hita í u.þ.b. 20 mín. Því lengur sem súpan sýður, þeim mun betri verður hún.
  3. Skerið bringurnar í bita og steikið á pönnu.
  4. Setjið kjúklinginn síðan út í súpuna og látið krauma við vægan hita í u.þ.b. 20 mín.

    Í hverjum skammti eru  175 hitaeiningar án meðlætis 340 með og ríkulegt magn af C-vítamíni og steinefnum.

Meðlæti:

  • Sýrður rjómi
  • Rifinn ostur 17 %
  • Dorritos snakk
  • Guacamole

 

Meðlætið sett út í súpuna (hver og einn setur fyrir sig), gott að hafa brauð með.

Skrifað 16.2.2010 kl. 11:19 af Eva Hrund

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

4.2.2010

Fyllt beikonvafin kjúllabringa með meðlæti

Þar sem kjúllabringan hjá mér heppnaðist svo rosalega vel í gær ákvað ég að deila með ykkur hvernig ég fór að.


Hvítlauksostafyllt beikonvafin kjúllabringa með meðlæti - Mín uppskrift

Fyrir 2

2 kjúllabringur
Lítill rjómaostur með hvítlauksbragði
Beikonpakki
Hvítlaukur
Laukur
Paprika
Nokkrar kartöflur
Naan brauð með hvítlauksbragði
BBQ sósa
Extra Virgin Olive Oil (EVOO)
Maldon salt/garlic powder og svartur pipar (grófur)


Myndin er tekin af netinu.

Aðferð:
Byrjið á því að skera í kjúllabringurnar (hliðarskurð, ekki út í enda) og fyllið hana með rjómaostinum (fer ca 1 msk í hverja bringu). Vefjið kjúllabringuna með beikoni (ca 2-3 sneiðar á bringu, eða bara eftir hentugleika). Kryddið bringuna með maldon salti og grófum svörtum pipar.

Setjið EVOO á pönnu og bringurnar á. Steikið á báðum hliðum þar til beikonið er orðið stökk og látið í eldfast mót og inn í ofn á 200°C.

Skerið niður allt grænmetið og bætið smá olíu á pönnuna sem þið voruð að nota. Kryddið grænmetið með garlic powder, pipar og maldon salti og steikið vel. Þegar kartöflurnar eru orðnar nokkuð mjúkar setjið þá í eldfast mót. Skerið naan brauðið niður og setjið með í eldfast mót og hellið smá EVOO á það. Setjið inn í ofnin með bringunum í ca. 10 mín.

Hitið bbq sóuna í lítilli skál og berið fram með öllu saman. Rosa gott er að setja soðið sem kemur úr kjúllabringuna yfir bringurnar þegar þið borðið.

Bon Appetit!

Skrifað 4.2.2010 kl. 18:06 af Eva Hrund

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

16.1.2010

Heilhveiti-pizza botn

Ég er búin að vera að leika mér svolítið að pizza uppskrift familíunnar að undanförnu, t.d. að láta bara 50% hvítt hveiti á móti 50% heilhveiti, en í kvöld fór ég alla leið. Pizzan var ótrúlega góð, þannig að mig langar að deila með ykkur uppskriftinni.

Heilhveiti Pizza-Botn
400 gr. heilhveiti
100 gr. bygg (eða bara heilhveiti all the way)
3 dl volgt vatn hrist með 4 tsk af ger
3 msk isio olía (eða EVO)
Smá salt (1/2 tsk ca.)



Hnoða öllu saman. Láta hefast í minnst 60 mín. Sett hvað sem er á pizzuna og inn í ofn við ca. 200 gráðu hita þar til botninn er orðinn stökkur.

Skrifað 16.1.2010 kl. 2:12 af Eva Hrund

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

14.1.2010

Áramótaheit!

Skoða nánar

25.8.2009

Meatball samloka

Skoða nánar

25.8.2009

Spaghetti með "kjötbollum"

Skoða nánar

3.8.2009

Kanilsnúðar með hvítu súkkulaði

Skoða nánar

3.8.2009

Grillað kjúllasalat

Skoða nánar

27.7.2009

Alþjóðlegur núðluréttur ;)

Skoða nánar

27.7.2009

Grænmetislasagne

Skoða nánar

27.7.2009

Ratatoille

Skoða nánar

16.7.2009

Sumarsalat

Skoða nánar

16.7.2009

Vatnsmelónudrykkur

Skoða nánar

14.7.2009

Granineruð frönsk lauksúpa

Skoða nánar

7.7.2009

Uppskrift dagsins

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu



Who?

Nafn:

Eva Hrund Gunnarsdóttir

MSN netfang:

evahrund@hotmail.com

Tenglar

Flettingar í dag: 51
Gestir í dag: 12
Flettingar í gær: 58
Gestir í gær: 17
Samtals flettingar: 197585
Samtals gestir: 78806
Tölur uppfærðar: 20.3.2010 22:59:16
clockhere

eXTReMe Tracker