... pants on the ground, looking like a fool with your pants on the ground.
Verð að gefa honum "General Larry Pratt" props fyrir textann. Textinn er fljótur að ásækja þær heilsastöðvar sem lætur mann fá "lag á heilann".
http://www.youtube.com/watch?v=tMwhl4IrPNc
Annars hafði ég rosalega gaman af Idol-inu í gær, hló mikið og táraðist mikið (er svo mikil grenjuskjóða). Aðal ástæðan fyrir tárunum var reyndar fólkið sem átti einhver 13 börn og voru auk þess búin að ættleiða 4 stráka með "Downs syndrom" ... Ég átti ekki til eitt stakasta orð yfir góðmennsku fólksins og bara einfaldlega þroska þess, fannst þetta ótrúlegt og svo ótrúlega krúttlegir strákar. Hamingja þeirra skein í gegn, munar eflaust miklu að vera alinn upp á heimili þar sem að svona mikill skilningur ríkir.
En að öðru - Ég fór á Avatar 3-D á sunnudagskvöldið var og ég verð að viðurkenna að ég var HEILLUÐ. Nei ég gekk ekki í hóp þeirra sem verða þunglyndir eftir myndina, þar sem að raunveruleikinn er ekki til þess að lifa fyrir eftir að hafa séð mynda (það fólk hlýtur bara að hafa verið þunglynt fyrir btw) og að ég sé að hugsa sjálfsmorð líkt og það fólk. Heldur varð ég bara hugfanginn af bæði tækninni og söguþræðinum.

Ég reyndar fór ekki inn með neinar væntingar, það eina sem ég vissi var að þetta var fyrsta mynd James Cameron eftir að hann framleiddi Titanic og að hann hafi beðið með framleiðslu þessarar myndar þar til tæknin væri orðin það góð að hann gæti framleitt hana eins og hann hafi hugsað sér að gera hana... Og já það fer sko ekkert á milli mála að tæknin var geðsjúúúúúúúk. Það sem kom mér mest á óvart - líkt og áður sagði var:
- Söguþráðurinn -
Mér fannst hann einfaldlega sýna vel hversu grimmt mannfólkið getur verið og var góð ádeila á það um hvað þessi stríð ganga. Hermenn undir stjórn einræðisherra sem ráðast inn á land annarra til að græða eitthvað. Ég meina hvað annað var George Bush og Hitler að gera þegar þeir réðust inn í öll þessi lönd, þeir voru að reyna að græða á kostnað íbúa landanna. Skítt með það að það verði smá mannfall (collateral damage) í leiðinni. George vildi olíuna og Hitler vildi landssvæðin.
Mér fannst það líka svolítið skrýtið að vita það að ég hélt ekki með mannfólkinu heldur hélt maður með "The Na´vi'" og reyndar mannfólkinu sem fór í lið með þeim.
Ég varð reyndar líka svolítið heilluð af pælingunni með þetta andlega hjá þeim, allir tengdir þessum guði "Eewa" sem er tengd þeim öllum. Og líka hvernig öll dýrin voru tengd þeim. Ég var búin að heyra að söguþráðurinn væri mjög líkur söguþræðinum í "Dancing with the wolves", en þar sem ég hef ekki séð hana þá get ég ekki dæmt um það... Eflaust svipuð pæling.

Allavega - mæli með myndinni - must see!