Jæja ætla að fara byrja að skrifa aftur! Búið að vera ágætt frí, hef ekkert sjálf kíkt á síðuna mína í laaaaangan tíma!
Verða smá breytingar í kjölfarið, ætla að fara læsa öllum síðunum og einstaka bloggfærslum, breytti lykilorðinu þannig að þeir sem vilja fá það nýja endilega sendið mér e-mail á evahg@tm.is.
Við í Halastjörnunni fórum og kepptum á Bikarmóti um helgina, en þar sem enginn annar fullorðinshópur ákvað að keppa við okkur þá urðum við sjálfkjörnir bikarmeistarar á trampólíni og dýnu (tókum ekki þátt í dansi). En ef einhver vill skoða video o.fl. af því þá er það inn á Halastjörnu síðunni -> http://www.123.is/halastjornur
Ég og Heiðar ákváðum upp úr þurru að skella okkur til Barcelona um páskana! Nice... sérstaklega þar sem þetta var ákveðið bara allt í einu :)
En allavega, ætla fara skrifa á hverjum degi núna, byrja aftur með átakið o.fl. :)