Mér finnst ÆÐISLEGT að Ísland vann silfrið á ólimpíuleikunum um daginn í handbolta, alveg hreint FRÁBÆRT!! Og mér finnst einnig SNILLD að taka mjög vel á móti strákunum okkar ...
... eeeeeeen ...
Það að lenda flugvél á Keflavíkurflugvelli og hleypa farþegum út og taka svo aftur á loft og lenda í Reykjavík bull út í eitt!
Það að senda einhvern blessaðan ráðherra í annað skiptið til Kína, þegar forsetinn er þegar á staðnum, í pjúra snobbferð algjört bull. Sko á Saga Class, með föruneytið sitt með sér, á flottustu hótelunum... halló?
Og það versta er Á KOSTNAÐ SKATTGREIÐANDA!
Sorry en hversu mikinn pening kostar að lenda flugvél og taka á loft, þ.e. stórri farþegaflugvél? Flugmenn svarið mér nú... Og þessi snobbferð Þorgerðar Katrínar, ég hef heyrt tölur upp á nokkrar milljónir um þá ferð.
Ég efast um að þeir hefðu verið ósáttir við að fara hefðbundnu leiðina í gegnum flugvöllinn, ná sér í skattfrjálsan varning og svona í leiðinni... Ég hefði að minnsta kosti ekki nennt að fara aftur á loft eftir Thailands ferðina mína.. Sniglarnir ætluðu líka að vera svo cool á því og vera í samfloti með þeim Reykjanesbrautina.
Æ ég þoli ekki svona snobb í þessum blessuðu ráðherrum og svona... sérstaklega þegar þeir gætu nýtt peningana mikið betur, hvernig væri t.d. bara að minnka skattinn á okkur?
Ekki man ég til þess að einstaklingar sem hafa verið að keppa á "Ólympíuleikum fatlaðra" sem m.a. hafa hreppt gullið, hafi verið heiðraðir með þessum látum. Er það ekki ósanngjarnt gagnvart þeim?
En innilega til hamingju strákar, íslenska þjóðin er stolt af ykkur, því miður er ríkið gjörsamlega að eyðileggja þetta að mínu áliti.