Jæja þá er ég loksins hætt í bloggpásunni. Ég sá einhvern vegin ekki tilgang í því að halda úti tveim "heimasíðum", þar sem að facebook býður upp á svo góða möguleika, en víst ég get núna tengt bloggið við facebook þá er ég sátt
En já mér sýnist samt á öllu að bloggin séu orðin úrelt, enda henti ég öllum tenglum út nema börnunum þar sem enginn hafði bloggað í liggur við meira en ár. Ef þið eruð með nýtt blogg eða eitthvað þannig, endilega sendið þá tengilinn á mig, er svo gott að hafa þá alltaf þarna til hægri svo ég geti tekið "rúntinn". Ég ætla bara að vera öðruvísi og byrja upp á nýtt að blogga, ekkert jafn gaman að gera glósur á facebook. Þar getur maður ekki valið liti eða neitt á færslurnar hehehe
Ástæðan fyrir upptöku bloggsins er kannski líka sú að ég er flutt í nýtt land og þó maður sé duglegur að setja inn myndir þá er ég ekkert endilega að setja inn neinar fréttir nema bara stutta status-a.
Allavega... Við skötuhjúin fórum í viku til Benidorm og ákváðum svo að koma í framhaldinu til Íslands og taka 3 vikur hér. Heiðar er bara að njóta sín í fríinu sínu, fer í einkaþjálfun á morgnanna, gönguklúbbinn sinn eftir æfinguna (jáhh hann er víst orðin sjálfskipaður formaður klúbbsins hehe), sund og potta með klúbbnum og eftir hádegi eyðir hann svo deginum á golf vellinum og svo eru kvöldin nokkuð frjáls hjá honum... jáhhh ég myndi segja að þetta sé nokkuð ljúft frí hjá honum. Ég hinsvegar get kannski ekki alveg kallað mitt frí, "frí", þar sem ég er búin að mæta í vinnuna alveg síðan ég kom heim. En mér finnst það hinsvegar mjög ljúft, alltaf góð tilbreyting að mæta í vinnuna og heyra í fólkinu, í stað þess að vera einhverf heima hjá mér. Ég hef hinsvegar tekið upp á því, líkt og einhverjir facebook vinir mínir hafa eflaust séð, að hjóla frá Hörðukórinu niður í vinnu og tilbaka! Þarna er ég að ná að brenna rúmlega 1.000 kkal á dag, sem er bara ljúft á minn mælikvarða!
Það má s.s. segja að við skötuhjúin höfum verið frekar busy síðan við komum til landsins. Ég eignaðist reyndar líka tvíbura í þessari heimferð og Heiðar spurði mig (að sjálfsögðu í djóki) hvort hann yrði eitthvað laus við hana Halldóru mína meðan við erum stödd hér á landi hahahaha
Í gær fórum við í útskrift til Sigrúnar frænku og það má með sanni segja að þetta var svakaleg veizla! Enda varð nú að taka þetta með trompi þar sem að gellan var að útskrifast með master í lögfræði úr HR. Hún var með svakalegar einkunnir 8,44 í meðaleinkunn og 8,5 fyrir ritgerðina sína, ekkert smá stolt af henni! Þemað hjá henni var Haway-lúá (kann ekki að skrifa, bara segja það). Þegar mætt var á svæðið var boðið upp á Pina Colada og veitingar frá Austur Indía félaginu (verst að það sé ekki boðið upp á Hawai-neskan mat á Íslandi? Btw hvernig ætli hann sé?) og húsið og pallurinn skreytt í þemanu, erum að tala sko um pálmatré út í garði og allir fengu hawai blómakransa. Svo var dansað út í eitt, sungið í karaoke og um miðnætti fór Eyjólfur frændi út og grillaði pylsur ofan í liðið. Ég var reyndar orðin úrvinda þá þannig að ég missti af stuðinu sem var á liðinu niðrí bæ. Þetta var svakaleg veisla hjá minni og var eftir allar gjafirnar var hún þakin þvílíkum skartgripunum.
Jæja þetta er nóg í bili. Er að þrífa (like usual) og þarf víst að halda áfram.
Punch-line-ið er s.s. það að ég er byrjuð að blogga aftur