Það er vægast sagt hægt að segja að storkurinn hafi komið í heimsókn til flest allra vinkvenna minna árið 2009.

Þetta var alveg ótrúlega fyndin tilviljun. Við vorum 4 í vinnunni sem vorum alltaf saman og upp úr þurru urðu þær allar 3 óléttar. Ég er svo í saumó með æskuvinkonum mínum úr Keflavíkinni, við erum 6 í hópnum og þær urðu allar 5 óléttar. Og til að toppa þetta þá voru 2 aðrar vinkonur mínar óléttar og 2 stelpur sem ég kynntist út í Lúx. Hahahaha, þannig að ég býð mig fram sem frjósemisguð ef einhver vill
Loksins er óléttutímabilinu lokið og vááá hvað þau eru öll miklar krúsídúllur!! Þetta voru s.s. 10 börn sem ég beið eftir að myndu koma í heiminn og voru þetta 6 stelpur og 4 strákar. Það fyndnasta er það að allar stelpurnar nema sú fyrsta og síðasta eru með Dís í nafninu sínu ... reyndar er sú síðasta óskýrð þannig að...?
Allavega þau komu í þessari röð:
Aníta Ósk Sigurjónsdóttir - Fædd 7. júlí 2009

Dóttir Ernu Kristjáns (TM vinkona) og Sigurjóns
Ísleifur Krummi Björnsson - Fæddur 13. september 2009

Sonur Öbbu (TM vinkona) og Bjössa
Arnar Logi Ragnarsson - Fæddur 24. september 2009

Sonur Ernu G. (æskuvinkona) og Ragga Haralds
Hinrik Viðar Hlynsson - Fæddur 28. október 2009

Sonur Báru Þórðar (æskuvinkonu) og Hlyns Viðars
Hafdís Marvinsdóttir - Fædd 23. nóvember 2009

Dóttir Örnu Bjargar (hmm... engin skilgreining, mjög góð vinkona
) og Marvins
Bergdís Brá Margeirsdóttir - Fædd 26. nóvember 2009

Dóttir Ernu Ósk (æskuvinkonu) og Margeirs
Þóra Vigdís Gústavsdóttir - Fædd 8. desember 2009 (annars á ég ekki að vita það, fékk ekki sms hehehehe hóst hóst hóst Kristín!!)

Dóttir Kristínu Hjartar (æskuvinkonu) og Gústa
Sóldís Harpa Enoksdóttir - Fædd 29. desember 2009 (rétt náði að fæðast sama ár og allar hinar Keflavíkurdúllurnar)

Dóttir Kristínu Holm (æskuvinkonu) og Enoks
Óskírð Báru og Heiðarsdóttir - Fædd 14. janúar 2010

(Stolin af Barnalandssíðunni hennar - vonandi er mér fyrirgefið
)
Dóttir Báru Bjarkar (TM vinkonu) og Heiðars Austmanns
... og svo LOKSINS kom sjálfur Kristó í heiminn - ég hef reyndar ekki verið þess heiðurs aðnjótandi að hitta hann enn ... Mjög fyndið dæmi, var alltaf búið að ákveða hvað hann ætti að heita og svo heyrði ég alltaf bara setningar eins og "Kristó var að sparka" o.s.frv. hehehe
Kristófer Kári Ólafsson (aka Kristó) - Fæddur 22. janúar 2010

(Stolin af Facebook síðu Berglindar Maríu)
Sonur Berglindar Maríu (Bifrastar vinkonu) og Óla
Og þar með eru börnin öll upp talin í bili - ég bara býð eftir næstu hrynu
Nóg á ég af vinkonum sem eru ekki með smábörn og jafnvel engin börn, þannig að ég býð bara spennt
En hérna er smá nostalgía fyrir þessar skvísur af óléttutímabili þeirra hehehe.
Í þessum saumó voru þær allar orðnar óléttar og allar búnar að tilkynna. Ég píndi þær (þó aðallega Báru og Ernu Ósk held ég) með að fá mér bjór í þessum saumó hehehehe.
Bára og Stína Erna G.


Kristín Hjartar Erna Ósk


Svo var þessi tekin upp á gamanið í brúðkaupi Kristínu Holm og Enoks, titill myndarinnar var: "Allar með óléttar nema Eva". Hehehe skemmtilegt ... hmmm....

Kristín Hjartar, Erna Ósk, Kristín Holm, Arna Björg, Erna G. og ég
Svo ein hér af TM stúlkunum mínum - Erna var reyndar svo snögg að ég náði bara andlitsmyndum af henni þegar hún var preggó hehehe.

Abba og Bára preggó og sætar
Og hún Berglind María hefur forðast myndavélina mína sem heitan eldinn síðustu 2-3 ár þar sem hún hefur í raun verið ólétt allan tímann haha. Þannig að
Ég er komin með það á hreint að mér var ekki boðið í saumaklúbbinn þegar æskuvinkonurnar ákváðu allar að verða óléttar í einu, ég man allavega ekki eftir þessu umræðuefni. Og ætli þær hafi svo ekki ákveðið í einum mömmuhittingnum að allar stelpurnar yrðu að hafa nafnið Dís í nafninu sínu, held að það sé nokkuð ljóst þar sem að Arna Björg gerði það og hún er í mömmuhópnum. Mjöööög spes og gruggugt
Halló halló, ég meina Hafdís, Bergdís, Þóra Vigdís, Sóldís. Strákarnir hafa greinilega sloppið, enda hef ég heyrt að Bára og Erna G. séu ekkert frægar fyrir að mæta í mömmuklúbbinn, þetta hefur greinilega verið þann dag sem hvorugar mættu sem þetta var ákveðið
Ég var alvarlega að spá í að kaupa mér bara hvolp og skýra hana Dís og fá að mæta með hana í mömmuhittingana ... væri það ekki svolítið sniðugt?
Kveðja, Eva ó-ólétta ... eða létta? Nei það passar ekki heldur.