Eva Hrund


Blogg

1.2.2010

Grænmetissúpa

Á hverjum mánudegi er ég með ágæta serimoníu um hádegisleitið. Þá tek ég grænmetisskúffuna út úr ísskápnum, tek allt grænmeti sem er á "síðasta söludag" og sker niður og bý til súpu fyrir kvöldið.

Þó er grunnurinn alltaf sá sami en það er:

- Olía (evoo) eða einhver önnur góð
- Laukur (ca. 3)
- Hvítlaukur (fer eftir smekk með magn)


Í þennan grunn er svo hægt að malla endalaust saman við og búa til hina fínustu Minestrone súpu.




Í dag bætti ég t.d. við:
- Sveppum
- Grænni papriku
- Sellerí
- Steinselju
- Tómat
- Gúrku
- Niðursoðnum tómötum
- Niðursoðnum maís (afgangur frá helginni)
- 2 kjúllabringum
- Svínalund (afgangur frá helginni)
- Frystum baunum og papriku, strengjabaunir og venjulegar
- Heilhveiti pasta skrúfum

Mér finnst svo eiginlega nauðsynlegt að bæta við eftirfarandi kryddum:
- Sjávarsalti
- Svörtum og Hvítum pipar
- Nautakrafti
- Kjúklingakrafti
- Worchester sósu

Önnur góð krydd eru t.d.:
- Hvítlaukspipar
- Cayenne pipar
- Kóríander
- Thyme
- Chili
- Paprika

Ég hef gengið langt í þessum tilraunum og þegar ég bæti sem furðulegustu hlutum við verður hún bara betri, t.d. hef ég bætt í hana:
- Soðnum kartöflum frá helginni áður
- Sósu frá helginni
- Rauðvíni og hvítvíni
- Salat blöndu (alls konar) frá helginni
- Soðinu, maukinu og olíunni úr 40 geira kjúkling (algjörlega gourmet þá)

Hægt að leika sér endalaust með þetta, rosa gott að láta líka:
- Eggaldin
- Nautalund
- Kartöflur
- Kúrbít
- Kjúklingabaunir
- Rauð spaghetti sósa
- Flest allar sósur
- Ferskur chili
- Paprikur
- Gulrætur
- Alls kyns frystar grænmetisblöndur


 Mæli einstaklega vel með þessu, þið eruð að nýta alla afganga sem er náttúrlega kostulegt.

Munið bara að láta vatn út í hehehe.

Ég leyfi þessu svo bara að malla til kvöldmats og smakka súpuna rétt fyrir upp á hvort ég þurfi að blanda einhverjum kryddum út í eða þynna.

Svo er hægt að borða súpuna daginn eftir - hún verður ennþá betri þá. Ég nota alltaf stærsta pottinn og geri nóg magn og set svo í nokkur lítil box og frysti þá í einum og einum skammti. Þannig að ef ég er ekki í stuði til að elda einn daginn, þá kippi ég bara súpu út og set inn í öbbann.

Súpan er æði svona, meira að segja Rósa sys, sem vill BARA rjómalagaðar súpur eða uppbakaðar, ALLS EKKI tærar, finnst þessi súpa góð.

Ég þoli ekki að henda mat og því reyni ég að nýta hann á þennan hátt.

Xoxo

Skrifað 1.2.2010 kl. 22:56 af Eva Hrund

Bein slóð á færslu

5 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit
Til baka

Fara á upphafssíðu



Who?

Nafn:

Eva Hrund Gunnarsdóttir

MSN netfang:

evahrund@hotmail.com

Tenglar

Flettingar í dag: 30
Gestir í dag: 4
Flettingar í gær: 133
Gestir í gær: 22
Samtals flettingar: 197421
Samtals gestir: 78766
Tölur uppfærðar: 18.3.2010 05:34:00
clockhere

eXTReMe Tracker