Ég afrekaði það að hitta að minnsta kosti 75% vinkvenna minna í gær. Ekki slæmt!
Hvar væri maður án vinkvenna sinna, ég held að ég væri dauð ef þær væru ekki til.
Átti svakalega kósý kvöld með henni Halldóru minni í gær.
- Endalaust spjall
- Skoðað gamlar myndir og video
- Leitað að frægum tvífara mínum
- Kertaljós
- Geggjuð fyllt beikonvafin kjúllabringa með steiktu grænmeti og hvítlauks naan brauði
- Smá hvítt
- Sex and the city
Bara nice!
Ekki verður helgin verri. Það verður loksins Eva, Dóra og Inga reunited á föstudaginn. Þá verður sko tekið upp gamla góða takta.
Sushi og hvítt (eða pizza og bjór), dansað, talað, hlegið.


Sushi á Fishmarket, september 2008.

Það er sko aldrei leiðinlegt hjá okkur
Ekki verður svo laugardagurinn síðri, þar sem að við ætlum að halda Þorrablót á Heiðarbrúninni fyrir familíuna og þessi familía er sko ekki fræg fyrir að láta sér leiðast þegar við hittumst.
- Get ekki sagt annað en að það sé kominn smá spenningur fyrir helginni -