Eva Hrund


Blogg

12.3.2010

Árshátíð Reykjanesbæjar

Þá er bara 1 dagur í Árshátíðina hjá Reykjanesbæ en hún verður haldin í Stapa á morgun ... bara stuð!

Ég verð að viðurkenna að þar sem ég hef alltaf verið að undirbúa þær árshátíðir sem ég hef farið á undanfarin ár, þá hef ég í rauninni ekkert pælt í þessari árshátíð. Ég veit t.d. ekki ennþá almennilega í hvaða kjól ég á að fara, ég er ekki búin að vera í átaki og grennst um nokkur kíló (frekar öfugt), ég er ekki tönuð í drazl (spurning um að henda brúnkukremi á mig í kvöld), ég er ekki búin að fara á hárgreiðslustofu til að klippa og lita á mér hárið, ég hef ekki keypt mér nýjar snyrtivörur og ég er ekki búin að kaupa mér gervineglur!

Þannig að jáááá... það verður fróðlegt að vita hvernig útkoman á mér verður á morgun. Það verður líka ágætis tilbreyting að njóta bara, að vera ekki með dauðans áhyggjur yfir því hvort að allt gangi vel! Undanfarin ár hef ég séð um 4 árshátíðir:

Bifróvisíon 2005
Bifróvísíon 2006
Árshátíð TM 2008
Árshátíð TM 2009

Finnst reyndar svolítið fyndið að pæla í því líka að þrátt fyrir brjálaðan undirbúning þá hef ég alltaf náð að framkvæma ofangreindan lista. Núna þegar það er engin undirbúningur, þá er greinilega ekki heldur undirbúningur á sjálfri mér ... Ætli þemað hjá mér í ár sé ekki bara = Afslappað útlit.

Jæja ég hef allavega kvöldið í kvöld. Ætla svo að hafa það kósý:

- Baka góða pizzu
- Fá mér smá lite
- Kveikja á kertum
- Fara í bað
- Djúpnæra hárið
- Handsnyrting, andlitssnyrting, fótsnyrting
- Plokka og lita augabrúnir
- Brúnkukrem
- Ákveða dressið

Held ég ætti þá að vera nokkuð ready fyrir morgundaginn, er það ekki?

Skrifað 12.3.2010 kl. 11:35 af Eva Hrund

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

10.3.2010

Quesadilla með tómat og hvítlauk

Quesadilla með tómat og hvílauk - Mín uppskrift


Ég gerði sjúklega gott quesadilla úr tortilla uppskriftinni sem ég lét hér inn í gær og VERÐ bara að deila með ykkur.


Myndin er tekin af netinu

Til að gera eitt stykki þarf eftirfarandi hráefni:

2 tortilla
2 tómata
2 hvítlauksgeira
Hvítlauksolíu
Ost

Aðferð:

Forhitið ofninn í 200°C.

Skerið tómatana í litla bita og saxið hvítlaukinn. Blandið þessu saman í skál og bætið ca. 1 msk af hvítlauksolíu með.

Leggið eina tortilla á álpappír og setjið nokkrar ostsneiðar á hana, setjið maukið því næst á og svo meiri ost ofan á það. Leggið aðra tortilla ofan á. Skellið inn í ofn þar til osturinn bráðnar vel og torilla er orðin vel bökuð að ofan. Skerið í bita (líkt og pizzu).

Voilla!

Skrifað 10.3.2010 kl. 9:14 af Eva Hrund

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

10.3.2010

18 ára?

Ég fór að velta aldurstakmörkum fyrir mér þegar ég var að hlusta á Bylgjuna í morgun. Það sem ég skil ekki er ,,af hverju miðast ekki öll boð og bönn við sjálfræðisaldurinn, þ.e. 18 ára"?

Eins og staðan er í dag þá fá krakkar bílpróf 17 ára, verða sjálfráða 18 ára, fá að kaupa tóbak 18 ára og fá að fara í ríkið 20 ára. Svo er verið að tala um í lagafrumvarpinu um ljósabekki verði miðað við 18 ára aldurinn.

Ég skil ekki af hverju 18 ára aldur er þá ekki aldurinn sem allt er miðað við. Ef að börn eru reiðubúin í að taka ábyrgð á sjálfum sér þegar þau eru 18 ára miðað við lög og reglur, af hverju geta þau þá borið ábyrgð á öðrum í bíl með sér þegar þau eru 17 ára?

Og ef að þau eru tilbúin í að taka ábyrgð á því hvort þau vilji eiga hættu á að fá lungnakrabba og annað með reykingum og sortuæxli, flatlaus o.fl. með því að fara í ljósabekki, af hverju geta þau þá ekki líka tekið ábyrgð á því hvort að þau vilji fá sér í glas þegar þau eru 18 ára? Af hverju er aldurstakmarkið í ríkið 20 ár? Eiga fullorðnir einstaklingar ekki að geta ráðið því hvort þau fái sér í glas, líkt og þau geta valið lungnakrabba og sortuæxli?

Ef að börn hætta að vera börn þegar þau eru 18 ára, er það þá ekki einmitt aldurinn þar sem þau geta tekið ábyrgð á öllu? Mér finnst það allavega.

Skrifað 10.3.2010 kl. 9:01 af Eva Hrund

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

9.3.2010

Jæja þá ...

Ég held að það sé hægt að fullyrða það að ég sé undanfarið búin að vera ömurlegur bloggari, ef hægt er að kalla mig bloggara!!

Ástæðan fyrir þessu bloggleysi er eflaust sú að ég er að reyna koma mér inn í nýja rútínu, þ.e. að vinna 100% vinnu, þjálfa fimleika, æfa fimleika og yfir höfuð að lifa þessu daglega lífi. Stundataflan hjá mér er nokkuð kreisí eða ca. svona:

Mán - Vinna frá 08:00-16:00, Þjálfa frá 17:00-18:00, Þjálfa frá 19:30-21:00

Þri - Vinna frá 08:00-16:00, Fimleikaæfing í bænum frá 20:00-21:30

Mið - Vinna frá 08:00-16:00, Þjálfa frá 17:00-18:00, Þjálfa frá 19:30-21:00

Fim - Vinna frá 08:00-16:00, Fimleikaæfing í bænum frá 20:00-21:30

Fös - Vinna frá 08:00-16:00


Og svo fer náttúrlega mikill tími í hin daglegu verkefni sem fylgja svona dagskrá eins og t.d. það mikilvægasta: AÐ SOOOOOOOFA! Hehehe sérstaklega núna þegar ég er að reyna að sortera inn í þessa dagskrá mína, þá er maður algjörlega örmagna.

En hey! I luv this! Myndi aldrei vilja skipta þessu út fyrir atvinnuleysi og tóma dagskrá, never ever!

Svo er ég komin með sumarjob líka, þannig að það er allt að koma saman hjá mér.



Allavega nóg af þessu update-i, finnst eflaust engum gaman að lesa um það. Ég ákvað að búa til mínar eigin tortillur um daginn og þær heppnuðust svo vel að ég ákvað að deila hér með ykkur!! Uppskriftin er auðveldari en það að fara út í búð og kaupa þær og að sjálfsögðu líka ódýrari. Here it goes:


Heilhveiti Tortillur -
Stuðst við uppskrift úr bókinni "Lærum að elda mexíkóskt"


300 gr. heilhveiti (í bókinni var talað um 300 gr. af maísmjöl - einnig hægt að nota hvítt hveiti)

1 tsk. salt

300 ml. volgt vatn (samt aðeins minna) (300-350 ml miðað við maísmjöl)




Blandið heilhveiti og salti saman. Hellið volga vatninu rólega í þar til degið er orðið mjúkt og flott. Hnoðið deigið og búið til ca. 10 kúlur úr því.

Fletjið kúlurnar út með kökukefli. Setjið brauðdisk ofan á til að útbúa hringlóttar kökur og skerið út. Setjið torilluna á þurra pönnu og steikið báðum megin. Þið sjáið hvenær þær eruð tilbúnar.

Ég lét þær svo bara í viskustykki til að halda þeim heitum og góðum.





Skrifað 9.3.2010 kl. 15:28 af Eva Hrund

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

16.2.2010

Geggjuð mexíkósk kjúllasúpa!!

Þessi kjúllasúpa er GEEEEEEÐSJÚÚÚÚK. Ég elda hana MJÖG oft þar sem að hún er holl, góð og koloríusnauð. Ég geri oft 2faldan skammt þar sem mér finnst svo gott að setja í box og frysta í skömmtum. Svo þegar ég nenni ekki  að elda, þá bara kippi ég einu boxi út og hendi inn í öbbann í ca. 10 mín.

Þar sem ég vil hafa hana í hollari kantinum, þá læt ég yfirleitt bara smá sýrðan rjóma (5-10%) út í og örlítinn rifinn ost. Sleppi s.s. hinu jukkinu (nachos o.fl.).

Þessi uppskrift er tekin af JSB (Jassballetskóli Báru) vefnum og það eru margar aðrar girnilegar uppskriftir þar, endilega kíkið á það. Ég hef reyndar bara prufað þessa og miðað við hvað hún er góð, þá efast ég ekki um annað en að hinar séu jafn góðar!


Mexíkósk súpa (fyrir4)

Hráefni:
  • 2 laukar
  • 2 hvítlauksrif
  • ½  flaska granini tómatsafi
  • 3 dl kjúklingakraftur
  • 3 dl kjöt-/grænmetiskraftur
  • 2 súputeningar
  • 1 tsk worchestersósa
  • 1 dósir niðursoðnir tómatar
  • ¼  rauður chillipipar
  • ¼  tsk kóriander
  • ¼  tsk chillikrydd
  • ¼ tsk cayennepipar
  • 2-3 kjúklingabringur (skinnlausar)

 

Aðferð:

  1. Skerið niður lauk og hvítlauk og mýkið á pönnu.
  2. Setjið allt hráefnið nema kjúklinginn í pott og sjóðið við vægan hita í u.þ.b. 20 mín. Því lengur sem súpan sýður, þeim mun betri verður hún.
  3. Skerið bringurnar í bita og steikið á pönnu.
  4. Setjið kjúklinginn síðan út í súpuna og látið krauma við vægan hita í u.þ.b. 20 mín.

    Í hverjum skammti eru  175 hitaeiningar án meðlætis 340 með og ríkulegt magn af C-vítamíni og steinefnum.

Meðlæti:

  • Sýrður rjómi
  • Rifinn ostur 17 %
  • Dorritos snakk
  • Guacamole

 

Meðlætið sett út í súpuna (hver og einn setur fyrir sig), gott að hafa brauð með.

Skrifað 16.2.2010 kl. 11:19 af Eva Hrund

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

12.2.2010

Ég er Bestur!

Skoða nánar

4.2.2010

Fyllt beikonvafin kjúllabringa með meðlæti

Skoða nánar

4.2.2010

Kósýlegheit

Skoða nánar

1.2.2010

Grænmetissúpa

Skoða nánar

1.2.2010

OJ ...

Skoða nánar

1.2.2010

Storkurinn

Skoða nánar

30.1.2010

Óþarfa lýtaaðgerðir!

Skoða nánar

27.1.2010

Whut?

Skoða nánar

22.1.2010

FRÍR PRUFUTÍMI

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu



Who?

Nafn:

Eva Hrund Gunnarsdóttir

MSN netfang:

evahrund@hotmail.com

Tenglar

Flettingar í dag: 50
Gestir í dag: 7
Flettingar í gær: 79
Gestir í gær: 21
Samtals flettingar: 197720
Samtals gestir: 78837
Tölur uppfærðar: 22.3.2010 12:23:39
clockhere

eXTReMe Tracker