Spaghetti með "kjötbollum"

Ástæðan fyrir að ég læt kjötbollur inn í sviga er út af því að í endanum voru þetta engar kjötbollur eiginlega haha. En allavega Heiðar var alveg sjúkur í þetta spaghetti þannig að ég á til með að láta þessa uppskrift inn.
Bollur
350 gr. nautahakk
2 bollar lauksúpa (sjá súpuuppskriftir - annars nota meiri lauk, hvítlauk, vatn og kraft)
Lítill laukur, ca. 2 bollar
1 gulrót, ca. 1 bolli
2 hvítlaukar raspaðir
1 bolli kirsuberjatómatar, hakkaðir niður
2 bollar rifinn parmesan (70 gr.)
1/2 tsk hvítlaukssalt, 1/2 tsk hvítur pipar
1 egg
2 tsk ítalskt krydd mix
40 gr. kartöfluflögur með salti (sett í poka og kramið)
Allt þetta hráefni er sett saman í skál og blandað saman.
Setjið ólívíu olíu á pönnu (ca. 2-3 msk) og á frekar háan hita. Búið til bollur og raðið á pönnuna. Brúnið vel báðar hliðar. Þegar bollurnar eru tilbúnar hellið þið eftirfarandi hráefnum ofan á.
Sósa
1 dós niðursoðnir tómatar
Fyllið hálfa dósina með tómatsafa
1/2 dós pítsasósa
5 msk tómatsósa
Kryddið með salti, pipar, hvítlaukssalti/pipar og jafnvel oregano, rósmarín, majoram og timjan... Allt eftir smekk :)
Enjoy
Alþjóðlegur núðluréttur - Mín uppskrift
Já ég veit nú ekki alveg hvað hægt sé að kalla þennan rétt, annað en Alþjóðlegan núðlurétt hehe. Ástæðan fyrir því er sú að ratatoille-ið er franskt, núðlurnar eru "asískar" og parmesan osturinn meira svona ítalskur/spænskur
Enn og aftur er ég að nýta afganga hér og það s.s. ratatouille-ið sem ég gerði svo stóran skammt af. Þessi uppskrift er fyrir ca. 2 aðila.
Ca. 300 gr. af ratatoille-inu (sjá Grænmetisréttir)
1 kjúllabringa (frekar stór)
Salt og pipar
Einn pakki af kjúklinganúðlum (þessar 3 mínútna núðlur - ekki hollar - en fljótlegar)
Parmesan ostur
Fersk steinselja
Aðferð:
Skerið kjúklingabringuna í bita og piprið og saltið hana. Setjið ca. 1 msk af ólífuolíu á pönnu og stekið kjúllabringuna á henni.
Þegar kjúllabringan er orðin hvít í gegn megið þið bæta ratatoille-inu við hana. Á meðan þetta mallar sjóðið þið núðlurnar skv. leiðbeiningum (passið að láta kjúllakraftinn út í soðið).
Þegar núðlurnar eru tilbúnar bætið þið þeim við á pönnuna með kjúllanum og ratatoille-inu. Þið leyfið þessu að "steikjast" í ca. 5 mín.
Setjið réttinn í skál og rífið ferskan parmesan ost og ferka steinselju ofan á.
Ennþá skemmtilegra er að borða þennan rétt með prjónum
